Tegund: Spennumynd, Glæpamynd
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
Release Date: 17.5.2023
Lengd: 2klst 21mín
Dreifingaraðili: Myndform
Dom Toretto og fjölskylda hans hafa skákað hverjum einasta fjandmanni sem orðið hefur á vegi þeirra og oft hafa leikar staðið tæpt. Nú standa þau andspænis hættulegasta óvininum til þessa: Hræðilegri ógn sem birtist úr skuggalegri fortíðinni og vill hefna sín á grimmilegan hátt. Hann er staðráðinn í að sundra fjölskyldunni og eyðileggja allt og alla sem Dom þykir vænt um, til frambúðar.