Tegund: Spennumynd, Hrollvekja, Stríðsmynd
Aldurstakmark: Bönnuð innan 16 ára
Release Date: 15.1.2021
Lengd: 1klst 23mín
Dreifingaraðili: Sena
Á dimmri nóttu í Seinni heimsstyrjöldinni kemst kvenkyns flugmaður um borð í B-17 sprengjuflugvél með leynilegan farangur. Áhöfnin tekur henni með fyrirvara, og efasemdir um farþegann vaxa eftir að vélin er komin í loftið. En þá birtist skuggi út úr sortanum. Eru það Japanirnir, eða eitthvað mun meira hrollvekjandi? Nú reynir á áhöfnina og farþegann, sem leynir svo sannarlega á sér.