Tegund: Spennumynd, Vísindaskáldskapur, Hrollvekja
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
Release Date: 12.10.2018
Lengd: 1klst 52mín
Dreifingaraðili: Sena
Venom birtist fyrst í teiknimyndasögum sem hálfgert yfirtökusjálf Köngulóarmannsins. Þetta gerðist fyrst í 252. hefti The Amazing Spider Man frá árinu 1984. Nokkrum árum síðar fór þessi vera úr Peter Parker, og yfir í ljósmyndarann Eddie Brock, og úr varð andhetjan Venom. Persónan birtist síðast á hvíta tjaldinu í túlkun Topher Grace í Spider-Man 3, sem Sam Raimi leikstýrði árið 2007