Tegund: Heimildarmynd
Aldurstakmark: Leyfð
Release Date: 15.10.2022
Lengd: 1klst 10mín
Dreifingaraðili: Bíóhúsið Selfossi
Minnsta rútuverksmiðja í heimi
Guðmundur Tyrfingsson
Hér sé Guð og góðir vættir
Þór Vigfússon
Gunnar Sigurgeirsson sýnir hér myndefni úr safni sínu og er sýningin hluti úr Menningarmánuðinum október. Sveitarfélagið Árborg býður frítt á þessa merkilegu bíósýningu.
„Minnsta rútuverksmiðja í heimi” þar sem Gunnar klippir saman ýmsar klippur úr bílasögu Guðmundar Tyrfingssonar og brennandi áhuga hans á ferðalögum og bílum.
Myndin „Hér sé Guð og góðir vættir” er samsett úr nokkrum söguferðum Þórs Vigfússonar sagnameistari, þar sem draugar og fornar hetjur héraðsins verða ljóslifandi þegar ekið er um Flóann og í fjarska bera heilagar þúfur við himinn.