Tegund: Gamanmynd
Aldurstakmark: Bönnuð innan 9 ára
Release Date: 2.6.2021
Lengd: 1klst 20mín
Dreifingaraðili: Myndform
Ný íslensk gamanmynd - Saumaklúbburinn - í leikstjórn Göggu Jónsdóttur eftir handriti hennar og Snjólaugar Lúðvíksdóttur. Aðalhlutverk fara með Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Arndís Egilsdóttir og Helga Braga Jónsdóttir. Fimm konur á besta aldri skella sér saman í bústað til að hafa það reglulega gott og slaka á - frjálsar frá sifelldu amstri hversdagsins. Undir huggulegu yfirborðinu leynast þó gamlar syndir sem leysast úr læðingi þegar síst varir. Þetta er þriðja gamanmyndin í röð frá framleiðendunum Erni Marinó Arnarsyni og Þorkeli Harðarsyni, en frá þeim komu Síðasta veiðiferðin og Amma Hófí. Tökur fóru fram sumarið 2020 á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.