Tegund: Drama, Rómantík
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
Release Date: 10.7.2020
Lengd: 3klst 7mín
Dreifingaraðili: Sena
ATH myndin er Ótextuð
Stórmynd um eitt hrikalegasta sjóslys sögunnar Sagan hefst 84 árum eftir slysið. 100 ára gömul kona að nafni Rose DeWitt Bukatar segir ömmubarni sínu, Lizzy Calvert, reynslusögu sína þegar hún fór í jómfrúarferð farþegaskipsins Titanic þann 10. apríl 1912. Hin unga Rose fer um borð í skipið ásamt efri stéttar farþegunum, og móður sinni Ruth DeWitt Bukater, og kærasta sínum Caledon Hockley. Á sama tíma er flækingspiltur og myndlistarmaður, Jack Dawson einnig að koma um borð í skipið, ásamt vini sínum Farbrizio De Rossi, en þeir vinna miða á þriðja farrými skipsins í happdrætti. Rose DeWitt segir alla söguna frá því að landfestar eru leystar, og þar til Titanic siglir á borgarísjaka og sekkur í sinni fyrstu og einu ferð, þann 15. apríl 1912, kl. 2.20 eftir miðnætti.
11 Óskarsverðlaun (besta mynd, leikstjórn, tæknibrellur, hljóð, hljóðvinnsla, myndataka, sviðshönnun, klipping, frumsamda tónlist, frumsamda lag, búningar)