Tegund: Drama, Spennumynd, Ævintýri
Aldurstakmark: Bönnuð innan 9 ára
Release Date: 29.8.2018
Lengd: 1klst 30mín
Dreifingaraðili: Sena
Ótrúlegt ævintýri sem gerist í Evrópu á síðustu ísöld, fyrir um 20.000 árum. Ungur maður fer í sína fyrstu veiðiferð ásamt bestu veiðimönnum ættbálksins en meiðist og er skilinn eftir meðvitundarlaus. Þegar hann rankar við sér er hann einn og allslaus – hann þarf að halda lífi úti í náttúrunni sem er bæði óvægin og hörð og komast heim áður en vetur skellur á. Þegar hann finnur úlf sem hefur orðið viðskila við flokk sinn, ákveður hann að temja hann. Ólíkleg vinátta myndast milli drengsins og úlfsins og þurfa þeir að reiða sig hvor á annan til að komast í gegnum þær hremmingar sem mæta þeim á leið þeirra.